27. febrúar 2007 klukkan 21:08
Ohh djö! Ég er orðin lasin AFTUR! Ég hélt að ég væri búin með pestina! Æ þetta er svo sem ekkert alvarlegt en ég er kveeeeefuð, get varla andað og þessu fylgir hálsbólga og eyrnabólga. Ég kann ekki við að taka mér frí þannig að ég er nú að vinna þessa daga, enda er þetta allt annað þegar maður þarf ekki að vera að taka sig til og fara út. Vonandi gengur þetta yfir fljótt, er ekki alveg að nenna að verða veik tvisvar í mánuði....
Var ég búin að segja ykkur að ég er mjög glöð og hamingjusöm yfir því að Caridee hafi unnið ANTM? Ég hélt með henni allan tímann!